Seattle er kraftmikill en hlýlegur staður þar sem miðbærinn iðar af lífi og ferðamönnum býðst að njóta hverrar stundar á þann hátt sem við er að búast í nútímaborg. Þar má sjá mörg dæmi um glæsilega uppbyggingu á liðnum árum, byggingar og söfn eins og Experience Music Project, Seattle Art Museum og Olympic Sculpture Park. Helsta kennileiti borgarinnar eru þó sem áður Geimnálin eða Space Needle sem var reist fyrir heimssýninguna árið 1962. Efst þar uppi er glæsilegasta útsýni sem völ er á í Seattle, Olympic Mountains í vestri, hinum megin við Pugetsund, Cascade Range í austri og við himin í suðaustri gnæfir Mountain Rainier, ógleymanleg sjón á heiðskírum og björtum degi.
Nánari upplýsingar um Seattle er að finna hér.
Fyrir pakkabókun til Seattle fást á bilinu 4.500 til 6.300 Vildarpunktar
Athugið að í boði er að kaupa forfallagjald.
Munið ferðaávísunina frá Master Card.
Punktaðu niður ferðalagið.
Takmarkað sætaframboð.
Skilmálar pakkaferða
Ferðaheimild til Bandaríkjanna - ESTA