Þakkargjörðarhátíð í Boston

Verð á mann í tvíbýli kr. 141.900.-

Þakkargjörðarhátíð í Boston
Útsölurnar í Boston byrja daginn eftir "Thanksgiving", þann 26. nóvember, og opna flestar verslanir mun fyrr en venjulega, sumar kl. 05:00 að morgni! Þetta er frábær ferð til að kynnast borginni undir leiðsögn Sólveigar Baldursdóttur ritstjóra Gestgjafans, borða góðan mat og versla á hagstæðum kjörum. Ferðin stendur yfir frá 25. - 29. nóvember 2010.

Síðast komust færri að en vildu svo það er um að gera að tryggja sér sæti sem fyrst í þessa ferð.

Nánari upplýsingar um Boston er að finna hér.
Fyrir pakkabókun til Boston fást á bilinu 3.500 til 4.900 Vildarpunktar.


Afsláttarbók Chelsea Premium Outlets

Bóka núna

Verð

Verð á mann í tvíbýli kr. 141.900
Verð á mann í einbýli kr. 168.300

Ferðalýsing

25. nóvember - fimmtudagur
Brottför frá Keflavík til Boston með FI 631 kl 17:00, áætluð lending í Boston kl 17:50 að staðartíma.

Fararstjóri (Sólveig Baldursdóttir) tekur á móti farþegum. Rútuferð á hótelið.

Courtyard by Marriot Boston Tremont Hotel
275 Tremont Street
Boston MA 02116

Farþegar skrá sig inn á hótelið og eftir það verður fararstjóri með viðtalstíma í gestamóttöku hótelsins.

26. nóvember - föstudagur
Frjáls dagur fram að kvöldverði

Útsölurnar byrja í Boston þennan morgun og búðirnar opna fyrr en venjulega sumar kl. 05:00 að morgni!

Um kvöldið er svo Thanksgiving kvöldverður á Avila Restaurant, One Charles St. South, Boston MA 0211. Athugið, farþegar koma sér sjálfir til og frá veitingastað.

19:30 - 20:00 – Mæting á veitingastaðinn í kokteil (Cocktails / Cash Bar)

20:00 - 22:00 - Kvöldverður

Matseðill:
Oven Roasted Vermont Free-Range Organic Turkey, Glazed Carrots, Roasted Butternut Squash, Yukon
Golf Mashed Potatoes, Challah Bread Herb Stuffing, Cranberry Apple, Chutney. For desert Pumpkin Pie, Warm Apple Pie and Homemade Ice Cream.


Athugið drykkir með matnum greiðast á staðnum.

27. nóvember - laugardagur
09:00 – 13:00 Skoðunarferð með rútu um borgina. Harvard Yard, Cambridge Commons og fleiri áhugaverðir staðir skoðaðir.


28. nóvember - sunnudagur
Frjáls dagur

29. nóvember - mánudagur
Heimferðardagur

17:00 Rúta frá Tremont Hotel á flugvöll

Mæting í gestamóttöku kl. 16:45.

Brottför frá Boston til Keflavíkur með FI 630 kl 20:35 og lent í Keflavík kl 06:40 að morgni 30. nóvember.


Nánari dagskrá verður send farþegum þegar nær dregur ferðinni.

Innifalið

Flug Keflavík - Boston - Keflavík
Rúta til og frá flugvelli erlendis
Gisting á Courtyard by Marriot Boston Tremont Hotel í 4 nætur
Thanksgiving kvöldverður á Avila Restaurant
Skoðunarferð um borgina í rútu með íslenskum fararstjóra
Íslensk fararstjórn Sólveig Baldursdóttir og Hrafn Gunnarsson
Flugvallarskattar


Lágmarksþátttaka 20 manns

Skilmálar

Athugið að í boði er að kaupa forfallagjald.

Munið ferðaávísunina frá Master Card.

Punktaðu niður ferðalagið.

Takmarkað sætaframboð.

Skilmálar pakkaferða


Ferðaheimild til Bandaríkjanna - ESTA

Vegabréf til Bandaríkjanna:
Íslenskir ríkisborgarar sem ferðast til Bandaríkjanna án vegabréfsáritunar verða að framvísa tölvulesanlegu vegabréfi eftir 26. október 2004. Öll íslensk vegabréf sem gefin eru út eftir 1. júní 1999 eru tölvulesanleg.
Til baka
Bookmark and Share


Pakkar


Bookmark and Share

Þú ert hér:





Skipta um leturstærð


Þú ert hér


Leit




 


Inspired by Iceland