Frábært tilboð til Boston þar sem þú gistir í 4 nætur en greiðir aðeins fyrir 3 nætur. Tvö hótel eru í boði á þessu tilboði, annars vegar Hilton Boston Financial District sem er skemmtilega staðsett 4ra stjörnu hótel nálægt Quincy Market og Washington Street sem er mjög skemmtileg verslunargata þar sem allar helstu verslanirnar er að finna og hins vegar Radisson Hotel Boston sem er staðsett í leikhúshverfinu, ekki langt frá Washington Street og Boston Common garðinum. Tilboðið gildir frá 18. nóvember á Hilton og 12. desember á Radisson - 31. mars 2012.
Athugið að ekki er hægt að bóka hótel í Bandaríkjunum nema fólk hafi náð 21 árs aldri.
Punktaðu niður ferðalagið. Hægt er að nýta 10.000 Vildarpunkta sem 6.000 króna inneign upp í flugferð til allra áfangastaða Icelandair.
Nánari upplýsingar um Boston er að finna hér. Fyrir pakkabókun til Boston fást á bilinu 4.200 til 6.720 Vildarpunktar
Verð á mann í tvíbýli í 4 nætur frá kr. 86.900.-* Verð á mann í einbýli í 4 nætur frá kr. 110.700.-* Verð á mann í þríbýli í 4 nætur frá kr. 82.300.-* Verð á mann í fjórbýli í 4 nætur frá kr. 80.100.-* Athugið að einungis eru 2 rúm í þriggja og fjögurra manna herbergjunum.
*Athugið að uppgefið pakkaverð er miðað við lægsta flugverð í boði hverju sinni. Þegar lægsta fargjaldið er uppselt hækkar pakkinn sem nemur verðmismuni á milli fargjaldaflokka. Athugið að uppfærsla á Saga Class gegn Vildarpunktum er ekki heimiluð í lægstu fargjaldaflokkum.
Íslenskir ríkisborgarar sem ferðast til Bandaríkjanna án vegabréfsáritunar verða að framvísa tölvulesanlegu vegabréfi eftir 26. október 2004. Öll íslensk vegabréf sem gefin eru út eftir 1. júní 1999 eru tölvulesanleg.