Frábært tilboð til Kaupmannahafnar þar sem þú gistir í 3 nætur en greiðir aðeins fyrir 2 nætur á hótel Imperial Hotel, Copenhagen Island eða Tivoli Hotel. Tilboðið gildir til 31. mars 2012. Staðsetning hótelsins er mjög góð, í miðbænum nálægt Tívolí og Ráðhústorginu en athugið að herbergin á hótelinu eru mjög lítil. Imperial Hotel er gott fjögurra stjörnu hótel í miðborg Kaupmannahafnar, við Ráðhústorgið. Tivoli Hotel er skemmtilegt 3ja stjörnu hótel sem opnaði í júlí 2010 í um 15 mínútna fjarlægð frá Tivoli. Copenhagen Island er gott 3ja stjörnu hótel ekki langt frá verslunarmiðstöðinni Fisketorvet.
Punktaðu niður ferðalagið. Hægt er að nýta 10.000 Vildarpunkta sem 6.000 króna inneign upp í flugferð til allra áfangastaða Icelandair..
Nánari upplýsingar um Kaupmannahöfn er að finna hér. Fyrir pakkabókun til Kaupmannahafnar fást á bilinu 3.000 til 4.800 Vildarpunktar.
Verð á mann í tvíbýli í 3 nætur frá kr. 62.900.-* Verð á mann í einbýli í 3 nætur frá kr. 85.800.-*
*Athugið að uppgefið pakkaverð er miðað við lægsta flugverð í boði hverju sinni. Þegar lægsta fargjaldið er uppselt hækkar pakkinn sem nemur verðmismuni á milli fargjaldaflokka. Athugið að uppfærsla á Saga Class gegn Vildarpunktum er ekki heimiluð í lægstu fargjaldaflokkum.