Wiesbaden stendur við Rínarfljót, skammt vestur af Frankfurt. Wiesbaden er höfuðborg Hessen með glæsilegum byggingum frá nýliðnum öldum, hallir og herrasetur. Borgin er jafnframt kunn fyrir skrúðgarða, græn svæði og glæsileg íbúðarhverfi. Í Wiesbaden eru að sjálfsögðu fjölmargir fyrsta flokks veitingastaðir, vínstofur, krár og gömul kaffihús. Menningarlífið er blómlegt og má njóta margs konar listviðburða. Í Wiesbaden er að finna töfrandi miðbæ. Helstu verslunargötur þar eru Kirchgasse, Langgasse, Neygasse og göngugötur út frá þeim. 24. nóvember til 23. desember er skemmtilegur jólamarkaður í Wiesbaden.
Flogið er til Frankfurt og fólk kemur sér sjálft til Wiesbaden með lest eða bíl. Lestarferðir frá flugvellinum eru á 15 - 30 mínútna fresti alla daga og tekur ferðin með lest um 30 mínútur. Nánar á www.rmv.de
Punktaðu niður ferðalagið. Hægt er að nýta 10.000 Vildarpunkta sem 6.000 króna inneign upp í flugferð til allra áfangastaða Icelandair.
Nánari upplýsingar um Wiesbaden er að finna hér. Fyrir pakkabókun til Frankfurt fást á bilinu 3.600 til 5.760 Vildarpunktar.
Verð á mann í tvíbýli í 3 nætur frá kr. 65.900.-* Verð á mann í einbýli í 3 nætur frá kr. 78.000.-*
*Athugið að uppgefið pakkaverð er miðað við lægsta flugverð í boði hverju sinni. Þegar lægsta fargjaldið er uppselt hækkar pakkinn sem nemur verðmismuni á milli fargjaldaflokka. Athugið að uppfærsla á Saga Class gegn Vildarpunktum er ekki heimiluð í lægstu fargjaldaflokkum.
Flogið er til Frankfurt og fólk kemur sér sjálft til Wiesbaden með lest eða bíl. Lestarferðir frá flugvellinum eru á 15 - 30 mínútna fresti alla daga og tekur ferðin með lest um 30 mínútur. Nánar á www.rmv.de