Upplifðu París í vor

Verð á mann í tvíbýli kr. 98.900.-

Upplifðu París í vor

Einstaklega áhugaverð 3ja nátta sérferð til Parísar frá 26. - 29. apríl 2012. Laufey Helgadóttir fararstjóri okkar í París um árabil mun leiða hópinn um króka og kima Parísarborgar. Meðal þess sem boðið verður upp á er þriggja klukkustunda skoðunarferð um Parísarborg með rútu þar sem allir helstu merkisstaðir borgarinnar verða skoðaðir. Ef tími gefst þann dag verður farið inn í Notre Dame kirkjuna. Seinni tvo dagana verður farið í gönguferðir, annars vegar um Montmartre hverfið og hins vegar um Mýrina. Gist er á Mercure Terminus Nord sem er gott þriggja stjörnu hótel.


Punktaðu niður ferðalagið. Hægt er að nýta 10.000 Vildarpunkta sem 6.000 króna inneign upp í flugferð til allra áfangastaða Icelandair.

Nánari upplýsingar um París er að finna hér.
Fyrir pakkabókun til París fást 3.600 Vildarpunktar.

Bóka núna

Verð

Verð á mann í tvíbýli kr. 98.900.-
Verð á mann í einbýli kr. 131.900.-

Ferðalýsing

26. apríl, fimmtudagur
Kl 13.05 Lent í París. Laufey Helgadóttir sækir farþega á flugvöllinn og fylgir á hótel Mercure Terminus Nord. Við komu á hótelið verður viðtalstími með fararstjóra svo er seinni partur dagsins frjáls.

27. apríl, föstudagur
Skoðunarferð um borgina kl. 09.00-13.00

Keyrt verður fram hjá helstu merkisstöðum borgarinnar, Bastillutorginu og Nýju Óperunni, Hotel de Ville, Louvre og Pýramidanum, Palais Garnier, Place Vendome, Champs-Elysées, Invalide byggingunum, Panthéon, Lúxembourgargarðinum o.s.frv. Stoppað verður á Concorde torgi, Palais de Chaillot þar sem útsýnið er best yfir Eiffelturninn og farið verður inn í  Notre Dame kirkjuna, ef tími leyfir.
Seinnipartinn sama dag - gönguferð um Montmartre hverfið
Montmartre eða Montmartre-hæðin í 18 hverfi Parísar er eitt af þessum sögufrægu hverfum, sem allir ferðamenn heimsækja. Á 19 öld var Montmartre kyrlátt þorp í útjaðri Parísar, þar til listamenn allsstaðar að úr heiminum fóru að flykkjast þangað og setjast þar að. Tónskáldið Hector Berlioz og rithöfundarnir Gérard de Nerval, Heinrich Heine og Henri Murger voru meðal þeirra fyrstu, en í kringum aldamótin 1900 kom önnur kynslóð, þar sem myndlistarmenn voru í meirihluta. Picasso dvaldi þar t.d. fyrstu ár sín í París og málaði þar eitt frægasta verk sitt, “Ungfrúnnar frá Avignon”, Renoir gerði hverfið ódauðlegt í verkinu Dansleikur á “Moulin de la Galette”, og Toulouse Lautrec varð einskonar goðsögn Montmartre í lifanda lífi, enda hefur hann tjáð “sál” og andrúmsloft hverfisins betur en nokkur annar. Eitt af aðalviðfangsefnum Toulouse Lautrec var Rauða Myllan sem stendur við Place Blanche neðarlega í hverfinu, og margir hafa eflaust kynnst í kvikmynd Baz Luhrmann, þar sem Nicole Kidman og Ewan MacGregor fara með aðalhlutverk. Skissur Toulouse Lautrec og teikningar af söngkonum og dönsurum Rauðu Myllunnar, Yvette Guilbert, Jane Avril, La Gouloue og Aristide Bruant eru fyrir löngu orðnar víðfrægar og gefa góða tilfinningu fyrir andrúmslofti þessara ára. Kvikmynd Jean-Pierre Jeunet um Amélie Poulin, sem var að mestu tekin í Montmartre gefur einnig góða hugmynd um þá þorpsstemningu sem ríkti og ennþá eimir eftir af. Í gönguferðinni um Montmartre munum við rifja upp andrúmsloft þessara “Belle  Époque” ára, um leið og við skoðum sögufræga staði hverfisins, St Pierre og Sacré Cæur kirkjurnar, Place de Tertre þar sem götumálararnir dvelja og nokkrar af götunum, þar sem litrík og sjarmerandi kaffihús setja svip sinn á umhverfið og allt iðar af lífi.


28. apríl, laugardagur - Gönguferð um Mýrina kl. 10.00-12.00
Mýrin, sem er eitt af elstu hverfum Parísarborgar myndar eins konar þríhyrningsform, sem afmarkast af Bastillutorginu, Ráðhúsinu (Hotel de Ville) og République torginu. Eftir að Hinrik IV lætur reisa hið fræga konungstorg, Place des Vosges, í byrjun 17. aldar verður hverfið smám saman aðal aðdráttarafl aðalsins. Í meira en heila öld verður Mýrin aðal tískuhverfi borgarinnar og margar þekktustu hefðarkonur Parísar, eins og t.d. Mme de Sévigné héldu hér sínar frægu “salons” þar sem rithöfundar, listamenn og stjórnmálamenn hittust og ræddu málefni líðandi stundar. Rútur mega helst ekki keyra um hverfið vegna þess hve göturnar eru þröngar og er þess vegna upplagt að fara í gönguferð og njóta þannig fullkomlega alls þess besta sem þessi sögufræga perla hefur upp á að bjóða. Í gönguferðinni verður gengið fram hjá öllum þekktustu herragörðunum, Picasso safninu og um vinsælustu göturnar, Place des Vosges, Rue des Francs-Bourgeois, Rue de Sévigné, Rue Payenne, Rue des Archives o.s.frv.
Seinni hluti dagsins frjáls.
Kl. 20.00 væri hægt að hafa sameiginlegan kvöldverð (ekki innifalið) ef áhugi er fyrir hendi. Farþegar þurfa þá að skrá sig með góðum fyrirvara í kvöldverðinn hjá fararstjóra, hægt er að senda henni tölvupóst á laufey@noos.fr.

29. apríl, sunnudagur
Kl. 11:15 brottför á flugvöllinn. Flogið verður klukkan 14:15 með FI 543. Áætluð lending í Keflavík er kl. 15:45

Innifalið

Flug
Flugvallarskattar
Gisting í 3 nætur á Mercure Terminus Nord ***
Morgunverður
Íslensk fararstjórn og íslensk leiðsögn
Skoðunarferð um borgina
Gönguferð um Mýrina og Montmartre hverfið
Rútuferðir til og frá flugvelli erlendis

Lágmarksþátttaka 20 manns

Skilmálar

Athugið að í boði er að kaupa forfallagjald.

Munið ferðaávísunina frá Master Card.

Punktaðu niður ferðalagið.

Takmarkað sætaframboð.

Skilmálar pakkaferða

Pakkar


Þú ert hér: