
Brussel er borg sem tengist daglegu lífi fjölmargra Evrópubúa því að þar eru höfuðstöðvar Evrópusambandsins og NATO og teknar afdrifaríkar ákvarðanir. En Brussel er þó framar öllu höfuðborg Belga og á sér langa og merkilega sögu, nær jafngamla og við Íslendingar. Eitt af því sem gerir heimsókn til Brussel svo eftirsóknarverða er að í borginni er að finna ókjörin öll af góðum veitingastöðum þar sem verðið er mjög hagstætt. Helsta verslunargatan í miðborg Brussel er Rue Neuve (Nieuwstraat) þar sem eru m.a. stór vöruhús. Fínar merkjavöruverslanir og fornmunaverslanir eru einkum í Sablon-hverfinu, milli Porte Louise og Porte de Namur og við Avenue Louise.
Nánari upplýsingar um Brussel er að finna hér.
Fyrir pakkabókun til Brussel fást á bilinu 3.000 til 4.200 Vildarpunktar.
Hótel í boði:
Hotel Bedford ***
Best Western City Centre ***
Athugið að í boði er að kaupa forfallagjald.
Munið ferðaávísunina frá Master Card.
Punktaðu niður ferðalagið.
Takmarkað sætaframboð.
Skilmálar pakkaferða