Frábært tækifæri til að kynnast Boston með íslenskum fararstjóra. Nanna Reykdal sem búið hefur í Boston um árabil verður fararstjóri í ferðinni. Farið verður í gönguferð um borgina og mun Nanna kynna farþega fyrir helstu merkisstöðum borgarinnar. Farið er til Boston 4. apríl sem er dagurinn fyrir skírdag og farið aftur frá Boston þann 8. apríl 2011 sem er páskadagur svo lent er á Íslandi að morgni annars í páskum, 9. apríl. Gist verður á Hilton Boston Financial District sem er 4ra stjörnu hótel á góðum stað í borginni. Stutt er í verslanir á Washington Street og úrval skemmtilegra veitingastaða eru nálægt hótelinu.
Athugið: Ekki ert hægt að setja inn APIS upplýsingar á vefnum þegar sérferðir eru bókaðar aðeins í einstaklingsferðum. Vinsamlegast hafið samband við Fjarsölu Icelandair í síma 5050 100 og sölumenn aðstoða ykkur við að slá inn upplýsingar. Athugið að hafa vegabréf við höndina þegar þið hringið inn.
Athugið að ekki er hægt að bóka hótel í Bandaríkjunum nema fólk hafi náð 21 árs aldri.
Punktaðu niður ferðalagið. Hægt er að nýta 10.000 Vildarpunkta sem 6.000 króna inneign upp í flugferð til allra áfangastaða Icelandair.
Nánari upplýsingar um Boston er að finna hér. Fyrir pakkabókun til Boston fást 4.200 Vildarpunktar.
Verð á mann í tvíbýli í 4 nætur kr. 129.300.- Verð á mann í einbýli í 4 nætur kr. 206.100.-
Ferðalýsing
Dagskrá Boston sérferð 4. - 8. apríl 2012
4. apríl - miðvikudagur Brottför frá Keflavík kl 17:00 FI 631. Lending í Boston kl 18.35 að staðartíma. Fararstjóri ferðarinnar, Nanna Reykdal, tekur á móti farþegum. Rútuferð á Hilton Boston. Eftir innritun verður viðtalstími fararstjóra í gestamóttöku.
5. apríl - fimmtudagur Klukkan 10.00 - 14.00 Skoðunarferð með fararstjóra um borgina. Farið verður gangandi og mun hópurinn hittast í anddyri hótelsins kl. 9.50. Í þessari ferð göngum við frá hótelinu um götur Beacon Hill og Back Bay. Við byrjum við þinghúsið í Boston Common garðinum og göngum þaðan um fallegustu götur Boston á Beacon Hill. Eftir örstutt hressingarhlé á Beacon Hill munum við njóta friðsældarinnar í Public Garden, fallega skrýddum vorblómum. Þaðan flytjum við okkur yfir í ys og þys Newbury Street verslunargötunnar og Copley Square þar sem nútíminn mætir fortíðinni í Trinity kirkjunni, Hancock Tower, hæstu byggingu Boston, og einu fyrsta almenningsbókasafni heims, Boston Public Library. Boston er lítil og þægileg heimsborg sem auðvelt er að skoða fótgangandi. Það er því mikilvægt að vera á léttum og þægilegum gönguskóm og klæddur nokkrum þunnum lögum.
6. apríl - föstudagur Frjáls dagur
7. apríl - laugardagur Klukkan 10.00 - 12.00 Fararstjóri býður upp á stutta gönguferð. Hópurinn hittist í anddyri hótelsins kl. 9.50. Gengið verður frá hótelinu á söguslóðir þar sem grunnurinn var lagður að frelsisstríði Bandaríkjanna og undanfara sjálfstæðisyfirlýsingarinnar 1776. Við munum feta í spor Samuel Adams, John Adams, Paul Revere og John Hancock á The Freedom Trail inn að Faneuil Hall og Quincy Market, sem enn hýsir markaði og verslanir.
8. apríl - sunnudagur Frjáls dagur og brottför. Kl. 18:00 fer rúta frá Hilton Hotel á flugvöllinn. Mæting í gestamóttöku kl. 17:45. Brottför frá Boston til Keflavíkur kl 21:30 og lent í Keflavík kl. 06:30 að morgni 9. apríl.
Lágmarksþátttaka 20 manns Birt með fyrirvara um breytingar
Innifalið
Flug Flugvallarskattar Gisting í 4 nætur á Hilton Boston Financial District **** Rúturferðir til og frá flugvelli erlendis Skoðunarferð um borgina Íslensk fararstjórn Nanna Reykdal
Íslenskir ríkisborgarar sem ferðast til Bandaríkjanna án vegabréfsáritunar verða að framvísa tölvulesanlegu vegabréfi eftir 26. október 2004. Öll íslensk vegabréf sem gefin eru út eftir 1. júní 1999 eru tölvulesanleg.