Helsinki - hönnun og menning

Verð á mann í tvíbýli kr. 91.700.-

Helsinki - hönnun og menning

Spennandi hönnunar- og menningarferð 25.-28.maí 2012 til Helsinki sem útnefnd hefur verið  Hönnunarborg heimsins 2012 af alþjóðlegu hönnunarsamtökunum Icsid og því mikið framboð af hönnun til sýnis í tilefni þess.
Fararstjóri er Steinunn Guðmundsdóttur arkitekt, sem búið hefur í Helsinki um langt skeið. Hún mun kynna helstu merkisstaði borgarinnar og fara með hópinn á vel valda staði. Hópurinn mun gista á Hótel Helka sem er stílhreint og snyrtilegt  þriggja stjörnu hótel í hjarta borgarinnar. Hótelið er  búið hönnunarhúsgögnum frá Artek, en þau eru hönnuð af arkitektinum Alvar Aalto.

Saga Club Gjafabréf - Hægt er að nýta Vildarpunkta sem inneign upp í flugferð til allra áfangastaða Icelandair. Athugið að einungis er hægt að nota eitt gjafabréf fyrir hvern farþega í hverri ferð.

Nánari upplýsingar um Helsinki má finna hér.

Fyrir pakkabókun til Helsinki fást 3.600 Vildarpunktar.

 

Bóka núna

Verð

Verð á mann í tvíbýli kr. 91.700.-
Verð á mann í einbýli kr. 110.700.-

Ferðalýsing

25. maí - föstudagur
Brottför frá Keflavík kl. 07.55, áætluð lending í Helsinki kl. 14.20 að staðartíma. Fararstjórinn Steinunn  tekur á móti farþegum á flugvellinum í Helsinki og fylgir þeim með rútu á hótelið. Á leiðinni mun hún gefa farþegum hagnýtar upplýsingar um hvað vert er að sjá og skoða í borginni, dreifa korti þar sem búið er að merkja inn áhugaverða staði, Hönnunarmiðstöðina, Hönnunarsafnið, upplýsingar um hönnunarverslunarsvæðið, veitingahús og fleira.

26. maí - laugardagur
Frjáls dagur.  

27. maí - sunnudagur
Farið verður m.a. og skoðað nýjan hönnunarskála sem reistur hefur verið úr timbri á milli Arkitektasafnsins og Hönnunarsafnsins. Skálinn er hannaður af arkitektanemum Aalto háskólans í Helsinki og er „miðstöð“ (Meeting Place) þar sem fólk hittist og getur skoðað hvað er á dagskrá í tilefni hönnunarársins.  Á Hönnunarsafninu verður sýningin „Framtíðarsýn“ skoðuð, en hún fjallar um tímabilið 1940-1960 sem var „gullskeið“ finnskrar hönnunar. Arkitektasafnið býður upp á sýninguna „Strandlínur“ sem fjallar um mannvirkjagerð við strendur. Einnig verður ný  timburkapella í miðbænum skoðuð sem reist hefur verið í tilefni hönnunarársins. 
Mikið framboð er á hönnunarviðburðum á þessum tíma og verður nánari dagskrá kynnt síðar.

28. maí - mánudagur
Heimferðardagur, flogið heim með FI 343 kl. 15.30. Áætluð lending í Keflavík kl. 15.55.

Innifalið

Flug
Flugvallarskattar
Gisting í þrjár nætur
Morgunverður
Akstur til og frá flugvelli erlendis
Íslensk fararstjórn

Lágmarksþátttaka 20 manns

Skilmálar

Athugið að í boði er að kaupa forfallagjald.

Munið ferðaávísunina frá Master Card.

Saga Club Gjafabréf - Hægt er að nýta Vildarpunkta sem inneign upp í flugferð til allra áfangastaða Icelandair. Athugið að einungis er hægt að nota eitt gjafabréf fyrir hvern farþega í hverri ferð.

Takmarkað sætaframboð.

Skilmálar pakkaferða

Pakkar


Þú ert hér: