Bikeweek á Daytona - UPPSELT

Verð á mann í tvíbýli kr. 127.300.-

Bikeweek á Daytona - UPPSELT

Nú gefst hjólafólki kostur að fara á stærstu mótorhjólasamkomu í heimi á Daytona Bike Week í Florida. Þar sýna allir helstu mótorhjólaframleiðendur hjól og aukahluti og allt sem tilheyrir mótorhjólum. Farastjóri eins og undanfarin ár er Hafsteinn Emilsson, fyrir þá sem vilja leiga hjól eru þau bókuð í gegnum hann, e-mail idda65@hotmail.com. Gist verður Econolodge Inn and Suites sem áður hér Best Western Plaza á International Drive. Hótelið er látlaust 3ja stjörnu og vel staðsett.
Í boði eru dagsferðir til Daytona á Bike Week, einnig eru í boði hjólaferðir, sjá nánar dagskrá. Ferðin stendur yfir frá 13. - 21. mars 2012.

Í boði er að kaupa pakka bæði með eða án gistingar.

Hjólin eru bókuð í gegnum farastjóra og eru ekki innifalin í verði ferðar.

Athugið:
Ekki ert hægt að setja inn APIS upplýsingar á vefnum þegar sérferðir eru bókaðar aðeins í einstaklingsferðum. Vinsamlegast hafið samband við Fjarsölu Icelandair í síma 5050 100 og sölumenn aðstoða ykkur við að slá inn upplýsingar. Athugið að hafa vegabréf við höndina þegar þið hringið inn.

Nánari upplýsingar fást hjá fararstjóra á netfangið idda65@hotmail.com

Athugið að ferðir til og frá flugvelli eru ekki innifaldar svo mælt er með að fólk leigi sér bíl. Þú getur smellt hér og kynnt þér bílaleiguverð í Orlando

Fyrir pakkabókun til Orlando fást 4.800 Vildarpunktar.

Upplýsingasíða um Daytona Beach

Bóka núna

Verð

Verð á mann í tvíbýli kr. 127.300.-*
Verð á mann í einbýli kr. 145.900.-*


Verð á mann án gistingar kr. 107.300.-**

Lágmarksþátttaka 20 manns

Ferðalýsing

13. mars 
Flug FI 689 frá Keflavík brottför kl. 17:25 og lent á Sanford flugvelli í Orlando kl. 20:20. Gist á Econolodge Inn and Suites. Farþegar koma sér á eigin vegum á hótelið.

14. mars
Frjáls dagur.

15. - 17. mars
Ýmsar uppákomur á Daytona sjá www.officialbikeweek.com þar sem hægt er að skoða: sýningar, keppnir, prufuakstur á nýjum hjólum af öllum gerðum og stærðum og margt fleira.
Athugið: fararstjóri kemur til með að vera með ferðir í boði gegn vægu gjaldi á einhverjar af þessum uppákomum, þær þarf að panta hjá fararstjóra á staðnum.

18. mars Frjáls dagur

19.mars 
Er í boði hjóladagur með farastjóra , hjólin sótt hjá Orlando Harley Davidson kl 09:00 ( leið kynnt síðar )

20. mars
Hjóladagur í boði ( leið kynnt síðar )

21. mars
Heimferð. Fólk kemur sér á eigin vegum á flugvöllinn. Flogið er heim með FI 688, brottför frá Sanford kl. 18:00:

Innifalið

*Pakki með gistingu - UPPSELT!
Flug
Flugvallarskattar
Gisting í 8 nætur á Econolodge Inn and Suites ***
Íslensk fararstjórn

**Pakki án gistingar - UPPSELT!
Flug
Flugvallarskattar
Íslensk fararstjórn

Skilmálar

Athugið að í boði er að kaupa forfallagjald.

Munið ferðaávísunina frá Master Card.

Punktaðu niður ferðalagið.

Takmarkað sætaframboð.

Skilmálar pakkaferða

Ferðaheimild til Bandaríkjanna - ESTA

Vegabréf til Bandaríkjanna:

Íslenskir ríkisborgarar sem ferðast til Bandaríkjanna án vegabréfsáritunar verða að framvísa tölvulesanlegu vegabréfi eftir 26. október 2004. Öll íslensk vegabréf sem gefin eru út eftir 1. júní 1999 eru tölvulesanleg.

Pakkar


Þú ert hér: