Þessi paradís við Mexíkóflóa er syðst á miðvesturströndinni, hvítri og kitlandi sandströnd sem heimamenn kalla "sólarströndina". Til Sarasota eru 40 km í suður og af nógu að taka hvort sem menn vilja skemmta sér ærlega, leika sér með fjölskyldunni eða vera svolítið menningarlega sinnaðir. Allri fjölskyldunni bjóðast nær óteljandi tækifæri til hvers konar skemmtunar og útivistar í St. Petersburg Beach, yndisleg strönd og frábær aðstaða fyrir ferðamenn. Einn vinsælasti skemmtigarðurinn í Florida, Busch Gardens Tampa Bay, er rétt norður af Tampa. Þetta er alhliða skemmtigarður og dýragarður.
Flogið er til Orlando og er St. Pete í um það bil 2 1/2 klst. akstursfjarlægð frá Orlando.
Athugið að ekki er hægt að bóka hótel í Bandaríkjunum nema fólk hafi náð 21 árs aldri.
Punktaðu niður ferðalagið. Hægt er að nýta 10.000 Vildarpunkta sem 6.000 króna inneign upp í pakkaferð til allra áfangastaða Icelandair.
Fyrir pakkabókun til St. Pete fást á bilinu 4.800 til 7.680 Vildarpunktar.
Gildir frá 1. janúar - 18. maí 2012 og aftur frá 14. september 2012 til maí 2013.
Verð á mann í tvíbýli í 4 nætur frá kr. 89.900.-* Verð á mann í einbýli í 4 nætur frá kr. 105.900.-* Verð á mann í þríbýli í 4 nætur frá kr. 84.900.-* Verð á mann í fjórbýli í 4 nætur frá kr. 81.900.-*
*Athugið að uppgefið pakkaverð er miðað við lægsta flugverð í boði hverju sinni. Þegar lægsta fargjaldið er uppselt hækkar pakkinn sem nemur verðmismuni á milli fargjaldaflokka. Athugið að uppfærsla á Saga Class gegn Vildarpunktum er ekki heimiluð í lægstu fargjaldaflokkum.
Íslenskir ríkisborgarar sem ferðast til Bandaríkjanna án vegabréfsáritunar verða að framvísa tölvulesanlegu vegabréfi eftir 26. október 2004. Öll íslensk vegabréf sem gefin eru út eftir 1. júní 1999 eru tölvulesanleg.