Maddama kerling til Glasgow

Verð á mann í tvíbýli kr. 81.900.-

Maddama kerling til Glasgow

Skemmtiferð til Glasgow fyrir konur 22. - 25. nóvember 2012.
Gist verður á Jurys Inn Glasgow sem er gott 3ja stjörnu hótel, vel staðsett í miðborginni. Veitingastaðir, söfn, verslanir og kaffihús - allt í göngufæri. Það jafnast ekkert á við það að skreppa stutta skemmtiferð í hópi skemmtilegra kvenna, versla svolítið, enda gaman að segja frá því að Glasgow hefur oftast verið nefnd hagstæðasta og þægilegasta borgin til að versla í.  Á þessum tíma er borgin komin í jólabúning og því einstaklega falleg og gaman er að kíkja á litla jólamarkaði og fleira. Svo er farið á góða og notalega veitingastaði á kvöldin,allir í nágrenni við hótelið. Þessi ferð er fyrir stelpur á öllum aldri,saumaklúbba,vinnustaðahópa,mæðgur og allar sem langar  í góða og skemmtilega tilbreytingu frá amstri dagsins.

Eins og undanfarin ár eru Carola og Gúddý fararstjórar í þessari ferð.

Í boði er að fara dagsferð til Edinborgar ef næg þátttaka er fyrir hendi.

Fyrir frekari upplýsingar um ferðina má senda tölvupóst á fararstjóra á netfangið guddy@sial.is

Akstur til og frá flugvelli erlendis og Edinborgarferð er ekki innifalið og munu fararstjórar hafa samband við farþega til að kanna með þátttöku.

Saga Club Gjafabréf - Hægt er að nýta Vildarpunkta sem inneign upp í flugferð til allra áfangastaða Icelandair. Athugið að einungis er hægt að nota eitt gjafabréf fyrir hvern farþega í hverri ferð.

Nánari upplýsingar um Glasgow er að finna hér.
Fyrir pakkabókun til Glasgow fást á bilinu 3.000 til 4.800 Vildarpunktar

Bóka núna

Verð

Verð á mann í tvíbýli kr. 81.900.-
Verð á mann í einbýli kr. 98.900.-
Verð á mann í þríbýli kr. 77.900.-
Athugið að í 3ja mann herbergi er svefnsófi að auki.

Lágmarksþátttaka 20 manns.

Ferðalýsing

22. nóvember Keflavík Glasgow með FI 430
25. nóvember Glasgow Keflavík með FI 431

Innifalið

Flug
Gisting í 3 nætur á Jurys Inn Glasgow***
Morgunverður
Flugvallarskattar
Íslensk fararstjórn Carola og Gúddý

Skilmálar

Athugið að í boði er að kaupa forfallagjald.

Munið ferðaávísunina frá Master Card.

Saga Club Gjafabréf - Hægt er að nýta Vildarpunkta sem inneign upp í flugferð til allra áfangastaða Icelandair. Athugið að einungis er hægt að nota eitt gjafabréf fyrir hvern farþega í hverri ferð.

Takmarkað sætaframboð.

Skilmálar pakkaferða

Pakkar


Þú ert hér: