The Grove

London

The Grove

The Grove (20 mín frá Heathrow)er glæsilegasta nýja hótelið á öllu London svæðinu.  Hótelið opnaði í september 2003 og er nú vinsælasta helgarhótel fræga fólksins í London. Hótelið hefur verið í stöðugri byggingu síðastliðin átta ár og er mjög nýtískulegt.  Á hótelinu eru þrír veitingastaðir, þrír barir, tvær sundlaugar, fjöldinn allur af fundarherbergjum, veislusalur fyrir 500 manns, fullkomin líkamsræktarsalur og lúxus heilsulind “Sequuoa Spa”. Rúsínan í pylsuendanum er svo að sjálfsögðu golfvöllur hótelsins en hann er þessa dagana talinn vera sá besti í London. Frábært æfingasvæði fylgir hótelinu.

3 nætur, 3 golfhringir Innifalið: flug til og frá London, flugvallaskattar og aukagjöld, gisting með morgunverði, 3x18 holur og frítt aðgengi að heilsulind hótelsins.

Verð kr. 190.000 (nóv-mar) frá  kr. 220.000 (apr-okt)

Allir pakkarnir gilda allan ársins hring.     
Tilboðin miðast við að flogið sé heim á mánudagskvöldi.
Sé óskað eftir sunnudagsflugi heim bætast við kr. 6.000
Aukagjald fyrir einbýli kr. 10.000 á dag.
aukahringur kr. 14.000

Allar nánari upplýsingar fást hjá GB Ferðum

Pakkar


Þú ert hér: