Helgarferð á Marriott Hanbury Manor svíkur engan enda um að ræða eitt besta golfhótel Englands. Þetta margverðlaunaða 5-stjörnu hótel sameinar glæsigistingu við einstaka upplifun í þjónustu og mat. Slappaðu af í heilsulindinni þar sem þú getur valið um 100 mismunandi slökunarmeðferðir og snyrtiþjónustu eða taktu sundsprett í rómönsku sundlauginni. Marriot Hanbury Manor hefur margsinnis haldið Opna enska meistaramótið og er völlurinn talinn einn sá allra besti á Englandi. Völlurinn er parkland völlur, hannaður af Harry Vardon, en var endurhannaður árið 1980 af Jack Nicklaus II. Hringur á þessum velli er svo sannarlega eftirminnilegur.
Verð frá kr. 129.000 (Flug með sköttum, 3 nætur með morgunverði, 3 rétta kvöldverði & 4x 18 holu golfhringir)