Pétur Óli Pétursson verður fararstjóri í þessari ferð eins og undanfarin ár. Hann mun bjóða uppá mikið úrval skoðunarferða og verður ferðalöngum til aðstoðar. Til dæmis er í boði skoðunarferð um miðborgina, farið í Virki Péturs og Páls, í Vetrarhöllina, Hermitage safnið, St. Isaacs kirkju, sumarhöll keisarafjölskyldunnar, „Katrínarhöllina“ í Pushkin, og margt fleira. Ferðin stendur yfir frá 26. september til 1. október 2012.
Greitt er aukalega fyrir skoðunarferðir ytra.
Ferðirnar okkar í apríl og maí 2012 seldust strax svo að fyrstur kemur fyrstur fær í þessa ferð!
**Vinsamlega athugið það þarf vegabréfsáritun til Rússlands** ekki innifalið, kostar aukalega 6.500 kr.
Þegar nær dregur verður haft samband við farþega og útlistað nánar ferlið í umsókn um vegabréfsáritun.
Saga Club Gjafabréf - Hægt er að nýta Vildarpunkta sem inneign upp í flugferð til allra áfangastaða Icelandair. Athugið að einungis er hægt að nota eitt gjafabréf fyrir hvern farþega í hverri ferð.
Verð á mann í tvíbýli kr. 111.500.- Verð á mann í einbýli kr. 127.500.-
Lágmarksþátttaka 20 manns
Ferðalýsing
26. september 2012 Keflavík - Helsinki (FI 342) brottför kl. 07:55, lent í Helsinki kl. 14:20 Rúta til St Pétursborgar. Það tekur ca tvo tíma til landamærastöðvarinnar við Vaallima, þeir sem vilja geta fengið sér að borða þar. Eftir að komið er til Rússlands er 2- 2 1/2 tíma akstur á áfangastað.
1. október 2012 Brottför frá hóteli 06:00 ekið til Helsinki. Helsinki - Keflavík, (FI343) brottför kl. 15:30, lent í Keflavík kl. 15:55.
Innifalið
Flug Keflavík- Helsinki- Keflavík Gisting í 5 nætur á Hotel Moscow Morgunverður Rútuferð til og frá flugvelli í Helsinki til Pétursborgar Íslenskur fararstjóri Pétur Óli Pétursson Flugvallarskattar
Viðbótar kostnaður er ca. 6.500 vegna vegabréfsáritunar sem þarf að greiðast sérstaklega. Þegar nær dregur verður haft samband við farþega og útlistað nánar ferlið í umsókn um vegabréfsáritun.
Saga Club Gjafabréf - Hægt er að nýta Vildarpunkta sem inneign upp í flugferð til allra áfangastaða Icelandair. Athugið að einungis er hægt að nota eitt gjafabréf fyrir hvern farþega í hverri ferð.