Brussel með fararstjóra

Verð á mann í tvíbýli í 4 nætur kr. 111.600.-

Brussel með fararstjóra

Erla Halldórsdóttir sem þekkir borgina vel mun leiða hópinn og fara í gönguferðir um borgina ásamt því að fara í dagsferð með rútu til hinnar stórskemmtilegu borgar Brugge sem þekkt er fyrir súkkulaðiframleiðslu, góðan bjór og falleg torg með úrvali góðra veitingastaða og kaffihúsa.

Ferðin stendur yfir frá 6. - 10. september 2012. Gist er á Hotel Bedford sem er vel staðsett nálægt Grand Place sem er fallegt torg í miðborginni. Í borginni er að finna ókjörin öll af góðum veitingastöðum þar sem verðið er mjög hagstætt. Helsta verslunargatan í miðborg Brussel er Rue Neuve (Nieuwstraat) þar sem eru m.a. stór vöruhús. Fínar merkjavöruverslanir og fornmunaverslanir eru einkum í Sablon-hverfinu, milli Porte Louise og Porte de Namur og við Avenue Louise.

Saga Club Gjafabréf - Hægt er að nýta Vildarpunkta sem inneign upp í flugferð til allra áfangastaða Icelandair. Athugið að einungis er hægt að nota eitt gjafabréf fyrir hvern farþega í hverri ferð.

Nánari upplýsingar um Brussel er að finna hér.
Fyrir pakkabókun til Brussel fást 3.600 Vildarpunktar.

Bóka núna

Verð

6. - 10. september 2012

Verð á mann í tvíbýli kr. 111.600.-
Verð á mann í einbýli kr. 138.200.-

Lágmarksþátttaka 20 manns

Ferðalýsing

Fimmtudagur 6. september
Brottför frá Keflavík með FI 554 kl. 07.40. Áætluð lending í Brussel er kl. 12.50 að staðartíma. Fararstjóri tekur á móti farþegum á flugvellinum í Brussel og fylgir þeim með rútu á hótelið. Á leiðinni á hótelið mun hún gefa farþegum hagnýtar upplýsingar um hvað vert er að sjá og skoða í borginni, dreifir korti þar sem búið er að merkja inná áhugaverða staði, veitingahús og fleira. Við komu á hótelið mun fararstjórinn fara í stutta gönguferð um nágrenni hótelsins svo fólk átti sig á staðsetningunni á hótelinu og viti aðeins hvað er í boði í næsta nágrenni.

Föstudagur 7. september
Kl. 10:00 - 14:00 - Kynnisferð um Brussel fótgangandi. Farinn verður góður hringur um miðborg Brussel, en auðvelt er að fara um miðborgina fótgangandi. Við kíkjum inn í kirkjur og skoðum hallir og fræðumst aðeins um sögu Brussel í leiðinni. Saga Brussel nær aftur til 10. aldar og eru margar fallegar byggingar sem sýna byggingarstíl borgarinnar frá þeim tíma og fram til dagins í dag.

Seinnipartu dagsins er frjáls.

Laugardagur 8. september
Frjáls dagur.

Sunnudagur 9. september
Skoðunarferð til Brugge í rútu. Brottför kl. 09:00. Kl. 10:00 kemur fararstjóri frá Brugge og leiðir hópinn um borgina í 3ja klst. gönguferð (létt ganga sem á að henta öllum) þar sem kynntir verða helstu merkisstaðir borgarinnar ásamt súkkulaðimenningunni sem landið er þekkt fyrir. Kl. 13:00 verður farið í síkjasiglingu og kl. 14:00 í hádegisverð á brugghús þar sem fer fram bjórsmökkun og snæddur er hádegisverður. Áætlað er að koma tilbaka til Brussel um kl. 17:00.

Mánudagur 10. september
Frjáls dagur fram að brottför, með FI 559 kl. 22.30, áætluð lending í Keflavík er kl. 23.55.

Innifalið

Flug
Gisting í 4 nætur með morgunmat
Flugvallarskattar
Íslensk fararstjórn
Rútuferðir til og frá flugvelli erlendis
Gönguferð um borgina með fararstjóra
Dagsferð í rútu til Brugge með fararstjóra þar sem farið er í skoðunarferð, siglingu, skoðunarferð í brugghús og hádegisverður snæddur.

Skilmálar

Athugið að í boði er að kaupa forfallagjald.

Munið ferðaávísunina frá Master Card.

Saga Club Gjafabréf - Hægt er að nýta Vildarpunkta sem inneign upp í flugferð til allra áfangastaða Icelandair. Athugið að einungis er hægt að nota eitt gjafabréf fyrir hvern farþega í hverri ferð.

Takmarkað sætaframboð.

Skilmálar pakkaferða

Pakkar


Þú ert hér: