Helsinki hefur á sér bæði norrænt og rússneskt yfirbragð þegar horft er til byggingarlistar. Í borginni má sjá margar stórkostlegar byggingar, sumar eins og fluttar beint inn frá gamla rússneska keisaradæminu og aðrar sem gætu þess vegna verið í Stokkhólmi. Annars er Helsinki eins og hver önnur norræn stórborg og iðar af mannlífi, ekki síst á sumrin þegar heitt er í veðri og hægt að sitja alls staðar utandyra á kaffihúsum og veitingastöðum. Enginn ætti heldur láta sólríkan góðviðrisdag líða án þess að fara niður á höfn og bregða sér á markaðinn.
Mjög gott tilboð til Helsinki frá 2. mars - 30. júní 2012. Tilboðið gildir fyrir 3ja nátta ferðir frá föstudegi til mánudags á tilgreindu tímabili. Tvö hótel eru í boði á þessu tilboð, annarsvegar Hotel Cumulus Kaisaniemi sem er í miðbænum, við aðaljárnbrautarstöðina og hinsvegar Radisson Blu Seaside sem er vel staðsett við höfnina, aðeins nokkurra mínútna gangur í miðbæinn.
Saga Club Gjafabréf - Hægt er að nýta Vildarpunkta sem inneign upp í flugferð til allra áfangastaða Icelandair. Athugið að einungis er hægt að nota eitt gjafabréf fyrir hvern farþega í hverri ferð.
Verð á mann í tvíbýli í 3 nætur frá kr. 79.900.-* Verð á mann í einbýli í 3 nætur frá kr. 99.100.-*
*Athugið að uppgefið pakkaverð er miðað við lægsta flugverð í boði hverju sinni. Þegar lægsta fargjaldið er uppselt hækkar pakkinn sem nemur verðmismuni á milli fargjaldaflokka. Athugið að uppfærsla á Saga Class gegn Vildarpunktum er ekki heimiluð í lægstu fargjaldaflokkum.
Saga Club Gjafabréf - Hægt er að nýta Vildarpunkta sem inneign upp í flugferð til allra áfangastaða Icelandair. Athugið að einungis er hægt að nota eitt gjafabréf fyrir hvern farþega í hverri ferð.