Í Glasgow bjóðast ótal möguleikar til upplyftingar og skemmtunar, veitingastaðir, pöbbar, vínbarir, kaffihús, dansstaðir og klúbbar. Þar er gróskumikið lista- og menningarlíf og haldnar listahátíðir og efnt til sérstakra listviðburða allt árið um kring. Í nágrenni Glasgow eru einnig fjölbreyttir möguleikar til útivistar og afþreyingar fyrir alla fjölskylduna og hún er kjörin borg fyrir fólk í verslunarhugleiðingum.
Frábært sumartilboð til Glasgow sem gildir út júlí 2012. Lágmarksdvöl er 2 nætur og hámarksdvöl 7 nætur. Hótelið sem er í boði á þessu tilboði er Jurys Inn Glasgow sem er 3ja stjörnu hótel, vel staðsett í miðborginni.
Saga Club Gjafabréf - Hægt er að nýta Vildarpunkta sem inneign upp í flugferð til allra áfangastaða Icelandair. Athugið að einungis er hægt að nota eitt gjafabréf fyrir hvern farþega í hverri ferð.
Nánari upplýsingar um Glasgow er að finna hér. Fyrir pakkabókun til Glasgow fást á bilinu 3.000 til 4.800 Vildarpunktar
Verð á mann í tvíbýli í 2 nætur frá kr. 54.300.- Verð á mann í einbýli í 2 nætur frá kr. 70.300.-
*Athugið að uppgefið pakkaverð er miðað við lægsta flugverð í boði hverju sinni. Þegar lægsta fargjaldið er uppselt hækkar pakkinn sem nemur verðmismuni á milli fargjaldaflokka. Athugið að uppfærsla á Saga Class gegn Vildarpunktum er ekki heimiluð í lægstu fargjaldaflokkum.
Saga Club Gjafabréf - Hægt er að nýta Vildarpunkta sem inneign upp í flugferð til allra áfangastaða Icelandair. Athugið að einungis er hægt að nota eitt gjafabréf fyrir hvern farþega í hverri ferð.