Glæsileg 5 daga menningarferð frá 31. maí - 5. júní 2012 til München. Fararstjóri í ferðinni er Reynir Adamsson arkitekt, sem þekkir borgina vel eftir að hafa búið þar í 9 ár og er borgin alltaf efst á lista uppáhaldsborga hans. Ferðalög jafnt innanlands sem utan eru eitt af aðaláhugamálum Reynis og hefur hann oft farið með íslenska ferðahópa til Þýskalands í frítíma sínum og unnið sem leiðsögumaður þýskumælandi ferðamanna á Íslandi. Gist verður á góðu 4ra stjörnu hóteli, Hotel Concorde sem er mjög vel staðsett í miðborginni.
Saga Club Gjafabréf - Hægt er að nýta Vildarpunkta sem inneign upp í flugferð til allra áfangastaða Icelandair. Athugið að einungis er hægt að nota eitt gjafabréf fyrir hvern farþega í hverri ferð.
Nánari upplýsingar um München er að finna hér. Fyrir pakkabókun til München fást á bilinu 3.600 til 5.760 Vildarpunktar.
Verð á mann í tvíbýli í 5 nætur kr. 137.600.- Verð á mann í einbýli í 5 nætur kr. 168.600.- Verð á mann í þríbýli í 5 nætur kr. 133.600.-
Lágmarksþátttaka 20 manns
Ferðalýsing
31. maí - fimmtudagur Flug FI 532 frá Keflavík kl. 07:20, áætluð lending í München kl. 13:05. Farastjóri tekur á móti farþegum, ekið er með rútu á hótel. Gist er á Hotel Concorde ****
1. júní - föstudagur Dagur til þess að skynja og upplifa borgina. Gönguferð með leiðsögn, farið frá hóteli kl. 10:30. Gengið um gamla bæinn og skyggnst inn í söguna, Marienplatz (ráðhústorg), Viktualienmarkt (markaður), aðal göngugatan Kaufingerstrasse, litið inn í Frauenkirche og aðrar kirkjur (ca. 1-2 tímar). Fyrir þá sem vilja meira: Gengið fá miðbænun um Ludwig- og Leopoldstrasse fram hjá háskólanum. Við komum þar í Schwabing sem er háskóla-, skemmtana- og listamannahverfið (einnig væri hægt að fara með neðanjarðarlestinni smáspöl það ákveðst á staðnum). Þarna er urmull af veitingahúsum, söfn og margt annað áhugavert að sjá (ca. 1-2 tímar). Þarna líkur formlegri gönguferð en fyrir þá sem vilja ganga enn meira er gaman að rölta frá Leopoldstrasse í “Enska garðinn” sem er vin í hjarta borgarinnar og þar er einn stærsti bjórgarður í heimi (sæti fyrir allt að 10.000 manns) þar er gott að slappa af eftir gönguferðina, setjast í skugga undir kastaníutrjám og smakka á bæjeriskum bjór. Auðvelt er að fara til baka í miðbæinn. 2. júní - laugardagur Frjáls dagur. Langur laugardagur, verslanir opnar lengur en venjulega. 3. júní - sunnudagur Rútuferð um München fyrir þá sem vilja, farið frá hóteli kl. 10:00. Ekið verður um München, meðfram ánni Isar fram hjá Þinghúsinu og nokkrum helstu kennileitum borgarinnar. Farið fram hjá byggingum BMW að Olympíusvæðinu (olympíuleikar 1972), þar verður höfð viðdvöl, gengið um svæðið, farið upp í sjónvarpsturninn (hæð: 290 m.) þaðan sést í góðu skyggni suður í Alpa. Haldið frá Olymmpíusvæðinu að höllinni Nymphenburg sem er minni útgáfa af Versölum. Þar verður gerður stuttur stans og menn geta skoðað sig um í hallargarðinum. Loks munum við anda að okkur sveitalofti og koma við í Klaustrinu Andechs, sem er þekktur áfangastaður pílagríma um 40 km suðvestan við borgina, munkarnir þar hafa í aldaraðir verð þekktir fyrir góða bjórframleiðslu (þannig að pílagrímar koma þangað í mismunandi tilgangi). Þaðan verður ekið á hótelið. (alls. ca. 5-6 tímar).
4. júní - mánudagur Frjáls dagur. 5. júní - þriðjudagur Heimferð, rúta á flugvöll, farið frá hóteli kl. 10:30. Flug FI 533 brottför kl. 14:05, áætluð lending í Keflavík kl. 16:00.
Innifalið
Flug Flugvallarskattar Gisting í 5 nætur á Hotel Concorde **** Morgunverður Skoðunarferðir Rútuferðir skv. ferðalýsingu Íslensk fararstjórn
Saga Club Gjafabréf - Hægt er að nýta Vildarpunkta sem inneign upp í flugferð til allra áfangastaða Icelandair. Athugið að einungis er hægt að nota eitt gjafabréf fyrir hvern farþega í hverri ferð.