Fargjaldakerfi Icelandair felur í sér að farþegar eiga meira val þegar þeir bóka flugfar og kerfið býður hagstæð fargjöld með meiri sveigjanleika en áður.
Viðskiptavinum gefst nú kostur á að bóka flugfar aðra leiðina í öllum fargjaldaflokkum.
Farþegar geta valið um fargjald í fjórum mismunandi flokkum og til að færast upp á milli fargjaldaflokka er greidd tiltekin upphæð á milli flokka. Mögulegt er að setja saman ferðina úr mismunandi fargjaldaflokkum, t.a.m. að ferðast aðra leið á Saga Class en hina á Economy Comfort eða Economy Class
Það er von okkar hjá Icelandair að fargjaldakerfið eigi eftir að verða þér bæði til hagsbóta og þæginda. Einnig að það muni auðvelda þér að finna fargjald sem og að velja þjónustu og sveigjanleika sem hentar þér.


