Skilmálar

  • Jólafargjöld gilda aðeins í beinu flugi Icelandair á tiltekna áfangastaði: London, Manchester, Glasgow, Kaupmannahöfn, Stokkhólm, Oslo, Amsterdam, Frankfurt, París og Helsinki í Evrópu og New York, Boston og Seattle í Bandaríkjunum.
  • Bókunartímabil jólafargjalda er frá 22.desember 2011 til og með 13. janúar 2012. Eftir 13.janúar er jólafargjald ekki í boði.
  • Ef gjafabréfið er ekki notað fyrir þann tíma, þ.e. ekki er gerð bókun, þá gildir gjafabréfið sem inneign og má nota sem greiðslu upp í önnur fargjöld og skatta.
  • Gjafabréfið gildir í eitt ár frá útgáfudegi þess.
  • Ferðatímabilið er frá 10. janúar til og með 31. mars 2012. Síðasti ferðadagur á jólafargjaldi er 31. mars 2012 (lent á Íslandi 1.apríl 2012 frá USA). Athugið að flug til Helsinki hefst 2. mars 2012.
  • Lágmarksdvöl er aðfaranótt sunnudags nema á Saga Class gjafabréfum.
  • Ferð verður að hefjast á Íslandi og eingöngu er hægt að ferðast til og frá sömu borg.
  • Breytingar: Ef jólafargjald er til er breytingargjaldið 13.000 krónur á Economy farrými og 10.000 krónur á Economy Comfort. Ekkert breytingargjald á Saga Class.
  • Á öllum farrýmum bætist við fargjaldamismunur ef jólafargjald er ekki fáanlegt á því flugi sem breytt er á. Einnig getur komið til gengismunur á sköttum og gjöldum.
  • Endurgreiðslur og nafnabreytingar á farseðlum eru ekki heimilaðar.
  • Þjónustugjald kr. 3.000 er innheimt ef flug er bókað á söluskrifstofu eða í gegnum síma. Netbókunargjald kr.500 er innifalið í verðinu ef bókað er í gegnum heimasíðu www.icelandair.is
  • Enginn afsláttur er veittur fyrir börn eða ungabörn af jólapökkum á Saga Class.
  • Jólafargjald er ekki í boði á öllum flugum og sætaframboð er takmarkað.
  • Uppfærsla með Vildarpunktum er ekki heimil.
  • Ekki er hægt að breyta gjafabréfi aftur í Vildarpunkta.
  • Athugið að enginn afsláttur er fyrir börn eða ungabörn af jólapökkum ef greitt er með Vildarpunktum og peningum.
  • Jólafargjöld eru auðkennd með rauðum lit á bókunarvél Icelandair.